Forvarnardagurinn 2024 er í dag 2. október og í ár er áherslan hvatning um að huga að verndandi þáttum og vellíðan í lífi barna og ungmenna með kærleik. Skólar sem skráð hafa sig til þátttöku út um allt land fá aðgang að verkefnum í glæruformi þar sem kennarar fara yfir verndandi þætti og hvað hægt er að gera til að auka vellíðan barna og ungmenna.
Rannsóknir hafa sýnt að samvera með fjölskyldunni, þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og það að leyfa heilanum að þroskast án neikvæðra áhrifa eru verndandi þættir fyrir áhættuhegðun. Nemendur nýta þetta efni svo til umræðu í hópavinnu og skrá hugmyndir sínar um hvað veitir þeim vellíðan og hefur áhrif á góða heilsuhegðun, um samskipti og samveru með foreldrum og fjölskyldu, áhrif félagsþrýstings o.fl. Einnig ræða nemendur í framhaldsskólum um þá ákvörðun að drekka ekki eða seinka því að byrja að drekka áfengi og hvaða þættir hafa áhrif á þá ákvörðun.
Nemendum í þátttökuskólum (9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla) býðst að taka þátt í verðlaunaleik en nánari upplýsingar um leikinn verða aðgengilegar á vefsíðu Forvarnardagsins. Forseti Íslands afhendir verðlaun vegna leiksins við hátíðlega athöfn á Bessastöðum síðar á árinu.
Málþing Forvarnardagsins
Miðvikudagur 2. október, kl. 10:00.
Sjá viðburð á facebook og streymi
Dagskrá málþings:
Skólastjóri býður gesti velkomna
Fundarstjórn – Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs Embættis landlæknis
Til máls taka:
- Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir
- Landlæknir, Alma D. Möller
- Formaður borgarráðs, Dagur B. Eggertsson
- Margrét Lilja Guðmundsdóttir, þekkingarstjóri hjá Planet Youth: Ekkert um ykkur án ykkar.
- Rödd ungmenna: Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson og Karen Hulda Finnsdóttir fulltrúar úr ungmennaráði UMFÍ







