Miðlalæsisvikan haldin í þriðja sinn á Íslandi 20.-26. október

Sérstök fræðsluvika tileinkuð upplýsinga- og miðlalæsi verður haldin í þriðja sinn á Íslandi vikuna 20.-26. október. Um er að ræða árlegan viðburð þar sem lögð er áhersla á vitundarvakningu um mikilvægi upplýsinga- og miðlalæsis ásamt því að bjóða upp á nýtt fræðsluefni með mismunandi þema milli ára. Meginþema miðlalæsisvikunnar er að þessu sinni stafræn borgaravitund, […]
